Tilnefningar verða tilkynntar um miðjan desember 2011 en afhending verðlaunanna fer fram í lok febrúar 2012.
Þátttökuskilyrði
ÍTV eru opin öllum íslenskum útgáfum/verkum sem hafa komið út á Íslandi á tímabilinu 1. janúar til 29. nóvember 2011. Til að teljast íslensk útgáfa verður listamaður að búa og starfa á Íslandi eða vera íslenskur.
Þátttaka
Útgefandi/ábyrgðarmaður verður að skrá verk til þátttöku og sjá til þess að aðgangur að verkinu sé veittur. Mælst er til þess að 8-10 eintök af verkinu verði send til Íslensku tónlistarverðlaunanna að Rauðagerði 27, 108 Reykjavík eða, þar sem við á, að tónverk og/eða upptaka sé gerð aðgengileg hjá Tónverkamiðstöð. Þátttökugjald er ekkert. Útgefandi/ábyrgðarmaður velur þann undirflokk sem hann telur rétt að tilnefna hljómplötuna/verkið í. Dómnefnd er heimilt að leggja til breytingu á flokkun hljómplötu/verks en þarf samþykki útgefanda fyrir slíkri breytingu.
Skráning til þátttöku fer fram HÉR
Frestur til þátttöku er til miðnættis þriðjudaginn 29. nóvember 2011.
Réttur ÍTV
Við skráningu til þátttöku veitir útgefandi/ábyrgðarmaður ÍTV leyfi til þess að nota allt að 30 sekúndna bút úr innsendu verki við markaðssetningu og kynningu á ÍTV. Þegar um kynningu á endanlegum tilnefningum og verðlaunahöfum er að ræða má nota lög/verk í heild sinni. Þátttakandi er ábyrgur fyrir því að öll leyfi séu fyrir hendi.
Breyting á tilnefningaferli - Forvalshópar
Í ár hefur sú breyting orðið á tilnefningaferli Íslensku tónlistarverðlaunanna að sérstakir leynilegir forvalshópar hafa verið settir á laggirnar en þeir eru þrír talsins:
• Popp, Rokk
• Jazz, Blús
• Sígild, Samtíma
Alls skipa 9 manns hvern hóp og vita aðilarnir sem skipa hópinn ekki hver af öðrum. Stjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna skipar í hópana og reynir eftir bestu getu að gæta jafnræðis hvað aldur, kyn, störf og annað varðar. Hlutverk einstaklinga í forvalshópum er að kjósa um verk eftir flokkum með því að gefa stig og velja þannig hvaða verk komast áfram til dómnefnda sem jafnframt eru þrjár. Unnið verður úr niðurstöðum forvalshópanna áður en þær fara til dómnefnda og þess gætt að dómnefndir fái lista í hverjum flokki sem er helmingi lengri en endanlegar tilnefningar eiga að vera. Ef tilnefna á 5 plötur í flokknum Plata ársins (Popp, rokk) fær dómnefndin 10 efstu tilnefningarnar frá forvalshópnum en dómnefndin sér svo um að ákveða endanlegu tilnefningarnar fimm. Með forvalsfyrirkomulaginu og skipun dómnefnda eftir tónlistartegundum er markmiðið það að fleiri fái að hafa áhrif á tilnefningar Íslensku tónlistarverðlaunanna og að ekki sé um að ræða eina allsráðandi dómnefnd.
Dómnefndir
Dómnefndir ÍTV 2011 verða þrjár talsins, ein fyrir hvern hóp tónlistarstefna:
• Popp, Rokk
• Jazz, Blús
• Sígild, Samtíma
Dómnefndir eru skipaðar af framkvæmdastjórn ÍTV. Hver dómnefnd er skipuð fimm aðilum og er reynt eftir bestu geta að gæta jafnræðis hvað aldur, kyn, störf og annað varðar. Dómnefndir fá niðurstöður úr kjöri forvalshópa (helmingi fleiri en endanlegar tilnefningar eiga að vera) og ákveða endanlegar tilnefningar. Í þeim tilfellum þar sem tilnefnt er fyrir tvær eða allar tónlistarstefnur í einu þurfa dómnefndirnar að komast að sameiginlegri niðurstöðu.
Flokkar ÍTV 2011
Flokkar sem fara fyrir forvalshópa og dómnefndir:
A. Tónhöfundur ársins - sígild- og samtímatónlist
B. Tónhöfundur ársins – jazz, blús
C. Lagahöfundur ársins - popp, rokk
D. Textahöfundur ársins (allir flokkar)
E. Tónverk ársins – sígild- og samtímatónlist
F. Tónverk ársins – jazz, blús
G.
Lag ársins - popp, rokk
H. Tónlistarflytjandi ársins - sígild- og samtímatónlist
I. Tónlistarflytjandi ársins - popp, rokk, jazz, blús
J. Söngvari ársins - sígild- og samtímatónlist
K. Söngvari ársins - popp, rokk, jazz, blús
L. Söngkona ársins - sígild- og samtímatónlist
M. Söngkona ársins - popp, rokk, jazz, blús
N. Plata ársins - popp, rokk
O. Plata ársins - sígild- og samtímatónlist
P. Plata ársins - jazz, blús
Q. Tónlistarviðburður ársins
R. Erlenda plata ársins (popp, rokk)
Flokkar sem standa fyrir utan hefðbundið ferli:
S. Vinsælasti flytjandinn
T. Bjartasta vonin - sígild, samtíma
U. Bjartasta vonin - popp, rokk, jazz, blús
V. Plötuumslag ársins
X. Tónlistarmyndband ársins
Y. Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna
Reglur og útskýringar á flokkum
TÓNHÖFUNDUR / LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS (Flokkar A, B og C):
Gjaldgengir eru allir íslenskir höfundar eða höfundar sem búa og starfa á Íslandi sem vöktu athygli á árinu fyrir frumflutning og/eða frumútgáfu verks eða verka. Dómnefnd er frjálst að tilnefna tón/lagahöfund ársins óháð því hvort þeir hafi verið tilnefndir sérstaklega. Tilnefna skal fyrir áberandi framlag við ákveðið verkefni, svo sem fyrir verk/lög á ákveðinni hljómplötu eða lifandi flutning.
TEXTAHÖFUNDUR ÁRSINS (Flokkur D):
Gjaldgengir eru allir textahöfundar sem vöktu athygli á árinu fyrir frumflutning og/eða frumútgáfu verks eða verka á íslensku. Dómnefnd er frjálst að tilnefna textahöfund óháð því hvort þeir hafi verið tilnefndir sérstaklega. Tilnefna skal fyrir áberandi framlag við ákveðið verkefni, svo sem fyrir texta á ákveðinni hljómplötu eða lifandi flutning.
LAG/TÓNVERK ÁRSINS (E, F og G):
Gjaldgeng eru þau verk eftir íslenska höfunda eða höfunda sem búa og starfa á Íslandi sem frumflutt/eða frumútgefin voru á Íslandi á tímabilinu og lögð eru fram til dómnefndar af útgefanda. Dómnefnd er frjálst að tilnefna tónverk/lag ársins óháð því hvort það hafi verið tilnefnt sérstaklega. Útgefanda er í sjálfs vald sett hvort hann kýs að miða við frumflutning eða frumútgáfu verks en óheimilt er að leggja verk fram aftur ef það hefur áður verið lagt fram á öðru undangengnu tímabili. Komi upp sú staða að verk hafi verið frumútgefið á einu ári en notið vinsælda eða vakið athygli á tímabilinu sem ÍTV miðar við hverju sinni er heimilt að leggja það fram sem verk ársins. Skal dómnefnd þá túlka aðstæður þröngt, meta gjaldgengi verksins og rökstyðja niðurstöðu komi til tilnefningar, þó gildir sú takmörkun sem áður er getið um framlögn verks á öðru undangengnu tímabili. Tilnefna skal verk en höfundur/ar skal veita verðlaunum viðtöku.
TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS (Flokkar H og I):
Gjaldgengir eru allir íslenskir flytjendur eða flytjendur sem búa og starfa á Íslandi sem vöktu athygli á tímabilinu, óháð útgáfu. Tekið skal sérstakt tillit til starfsemi flytjanda á sviði lifandi flutnings. Dómnefnd er frjálst að tilnefna flytjendur óháð því hvort nöfn þeirra hafi sérstaklega verið lögð fram. Flytjandi skal veita verðlaunum viðtöku.
SÖNGVARI/SÖNGKONA ÁRSINS (Flokkar J, K, L og M):
Gjaldgengir eru allir íslenskir söngvarar og söngkonur og allir söngvarar og söngkonur sem búa og starfa á Íslandi og sem vöktu athygli á á tímabilinu, óháð útgáfu. Dómnefnd er frjálst að tilnefna flytjendur óháð því hvort nöfn þeirra hafi sérstaklega verið lögð fram. Söngvari/söngkona skal veita verðlaunum viðtöku.
HLJÓMPLATA ÁRSINS (Flokkar N, O, og P):
Gjaldgengar eru þær hljómplötur íslenskra flytjenda eða flytjenda sem búa og starfa á Íslandi sem lagðar eru fram til dómnefndar og voru frumútgefnar á tímabilinu. Gjaldgengi hljómplötu er óháð því hvort hún innihaldi frumflutning verka eða áður útgefin verk en skilyrði er að amk 80% hljóðritanna á hljómplötunni hafi ekki verið gefin út áður, á öðru tímabili. Dómnefnd er frjálst að tilnefna hljómplötu óháð því hvort hún hafi verið tilnefnd sérstaklega. Aðalflytjandi hljómplötunnar skal veita verðlaunum viðtöku.
TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS (Flokkur Q):
Gjaldgengir eru allir tónlistarviðburðir sem fram fóru á Íslandi á tímabilinu og þóttu skara fram úr hvað metnað, skipulagningu og framkvæmd varðar. Dómnefnd tilnefndir viðburði án þess að þeir séu sérstaklega lagðir fram. Skipuleggjandi viðburðarins skal veita verðlaununum viðtöku.
ERLENDA HLJÓMPLATA ÁRSINS (Flokkur R):
Gjaldgengar eru allar erlendar plötur sem komu út á tímabilinu. Gjaldgengi hljómplötu er óháð því hvort hún innihaldi frumflutning verka eða áður útgefin verk en skilyrði er að amk 80% hljóðritanna á hljómplötunni hafi ekki verið gefin út áður, á öðru tímabili. Dómnefnd tilnefndir hljómplötur án þess að þær séu sérstaklega lagðar fram. Endanlegt val er í höndum almennings. Aðalflytjandi hljómplötunnar skal veita verðlaununum viðtöku.
VINSÆLASTI FLYTJANDINN (Flokkur S):
Gjaldgengir eru allir íslenskir flytjendur eða flytjendur sem búa og starfa á Íslandi sem vöktu athygli á tímabilinu, óháð útgáfu. Tekið skal sérstakt tillit til starfsemi flytjanda á sviði lifandi flutnings. Valið fer fram með almenningskosningu. Flytjandi skal veita verðlaunum viðtöku.
BJARTASTA VONIN (Flokkur T og U):
Gjaldgengir eru allir íslenskir "nýliðar" eða "nýliðar" sem búa og starfa á Íslandi sem vöktu athygli á tímabilinu, óháð útgáfu. Sérstökum aðila verður falið að tilnefna í þessum flokki og skal skilgreining á nýliða vera í höndum hans sem skal þó geta rökstutt val sitt með sterkum hætti og ber honum að túlka hugtakið þröngt. Heimilt er að tilnefna hvort sem er flytjanda eða höfund. Óheimilt er að tilnefna aðila í þennan flokk sem áður hefur hlotið tilnefningu til ÍTV, gefið hefur út hljómplötu sem aðalflytjandi eða vakið hefur verulega athygli á einhverju tímabili sem er undangengið tímabili ÍTV hverju sinni. Tilnefndur aðili skal veita verðlaunum viðtöku.
Rás eitt og Rás tvö eru sérstakir samstarfsaðilar að verðlaununum Bjartasta vonin. Samstarfið felst m.a. í dagskrárgerð og kosningu á vef RÚV.
PLÖTUUMSLAG ÁRSINS (Flokkur V):
Gjaldgengar eru þær hljómplötur íslenskra flytjenda sem lagðar eru fram til sérstakrar fagnefndar og voru gefnar út eða endurútgefnar með nýju plötuumslagi á tímabilinu. Fagnefnd er frjálst að tilnefna plötuumslag óháð því hvort það hafi sérstaklega verið lagt fram. Hönnuður skal veita verðlaunum viðtöku.
TÓNLISTARMYNDBAND ÁRSINS (Flokkur X):
Gjaldgeng eru þau myndbönd við verk íslenskra flytjenda eða flytjenda sem búa og starfa á Íslandi sem lögð eru fram til fagnefndar og voru frumsýnd á tímabilinu, óháð upphaflegu útgáfuári tónlistarinnar. Fagnefnd er frjálst að tilnefna tónlistarmyndband óháð því hvort það hafi sérstaklega verið lagt fram.Leikstjóri skal veita verðlaunum viðtöku.
HEIÐURSVERÐLAUN ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNANNA (Flokkur Y):
Stjórn Samtóns velur ár hvert þann aðila sem heiðra skal sérstaklega fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar.
Sérstakar viðurkenningar:
HLJÓMPLÖTUR SEM STANDA FYRIR UTAN HEFÐBUNDNA FLOKKA ÍTV:
Dómnefnd er heimilt að veita allt að þremur hljómplötum sem standa fyrir utan hefðbundna flokkun (popp, rokk / jazz, blús / sígild, samtíma) sérstaka viðurkenningu þegar við á. Hljómplötur sem þarna gætu fallið undir eru barnaplötur, kvikmyndatónlist, þjóðlagatónlist og svo framvegis.
ROGASTANS ÁRSINS:
Gjaldgengir eru allir þeir sem starfa innan íslenska tónlistargeirans hvort sem um ræðir hljómsveit, höfund, upptökustjóra, skipuleggjanda tónlistarviðburða o.s.frv. Um er að ræða nýsköpunarverðlaun sem dómnefnd er heimilt að veita þeim aðila/aðilum sem með verkum sínum og gjörðum hafa rutt brautina og ýtt við íslenska tónlistarheiminum, til dæmis með framúrstefnulegri tónlist, nýstárlegum hljóðheimi eða óvenjulegri tónleikaupplifun.
Leiðbeiningar til vinningshafa og tilnefndra:
Félag hljómplötuframleiðenda kostar gerð límmiða fyrir bæði tilnefnda og vinningshafa.
Límmiðarnir eru afhentir samkvæmt samkomulagi við FHF.
Leiðbeiningar um notkun límmiðanna:
Einungis er leyfilegt að merkja plötu með límmiða ef:
*platan er tilnefnd sem hljómplata ársins í einhverjum flokkanna
*aðalflytjandi á plötunni er tilnefndur sem flytjandi ársins, bjartasta vonin, söngvari ársins eða söngkona ársins
*platan inniheldur verk/lag sem tilnefnt er sem verk/lag ársins (gildir þó ekki um safnplötur)
Ekki er leyfilegt að merkja plötu ef:
*platan er einungis tilnefnd fyrir umslag ársins.
*eina tilnefning plötunnar er myndband ársins við lag á plötunni (nema myndbandið sé bókstaflega að finna á plötunni - DVD eða CD-ROM).
*platan innihaldi, meðal annarra flytjenda, aðila sem er tilnefndur sem flytjandi ársins, bjartasta vonin, söngvari ársins eða söngkona ársins (safnplata eða plata margra flytjenda).
Fyrri tilnefningar og verðlaunahafar
Allar upplýsingar um tilnefningar og vinningshafa síðustu ára er að finna undir flipanum ÍTV 1993 - 2010.